Tor-samfélagið samanstendur af allskyns þátttakendum. Sumir skrifa hjálparskjöl og villuskýrslur á meðan aðrir standa fyrir viðburðum og sinna kynningarstarfi. Hvort sem þú hefur mikinn eða lítinn tíma til sjálfboðastarfa og hvort sem þú álítur þig hafa tækniþekkingu eða ekki, þá viljum við gjarnan að þú takir þátt í þessu með okkur. Hér fyrir neðan gefur að líta ýmsar þær leiðir sem hægt er að bjóða fram krafta sína í Tor-samfélaginu, auk ýmissa upplýsinga sem geta hjálpað í vinnu við Tor.
Þjálfun
Ertu að kenna fólki í kringum þig hvernig á að nota Tor? Hér er ýmislegt efni fyrir þig.
Útbreiðsla
Komdu með efni frá Tor á næst fund í hópnum þinum.
Onion-þjónustur
Onion-þjónustur hjálpa þér og þínum að komast framhjá eftirliti og ritskoðun. Sjáðu hvernig hægt er að nýta sér onion-þjónustur.
Staðfærsla
Við viljum að Tor virki fyrir alla íbúa heimsins, sem þýðir að hugbúnaðinn okkar þarf að þýða á mörg tungumál.
Notendarannsóknir
Við virðum friðhelgi notendanna okkar þegar við stundum rannsóknir.
Aðgerðir endurvarpa
Endurvarpar (relays) eru hryggjarstykki Tor-netsins. Gerðu Tor sterkara og hraðara með því að keyra endurvarpa.