Ef persónulegar upplýsingar á borð við lykilorð fyrir innskráningu fara ódulrituð yfir internetið, er mjög auðvelt að hlera þær. Ef þú ert að skrá þig inn á eitthvað vefsvæði, ættirðu að ganga úr skugga um að vefsvæðið bjóði HTTPS-dulritun, sem verndar gegn þessari tegun hlerana. Þú getur sannreynt þetta á staðsetningastikunni: ef tengingin þín er dulrituð, byrjar slóðin með “https://” í stað bara “http://”.
Eftirfarandi skýringamynd sýnir hvaða upplýsingar eru sýnilegar milliliðum með og án Tor-vafrans með HTTPS-dulritun:
- Smelltu á “Tor”-hnappinn til að sjá hvaða gögn eru sýnileg eftirlitsaðilum þegar þú ert að nota Tor. Hnappurinn verður grænn til að gefa til kynna að kveikt sé á Tor.
- Smelltu á ““HTTPS””-hnappinn til að sjá hvaða gögn eru sýnileg eftirlitsaðilum þegar þú ert að nota HTTPS. Hnappurinn verður grænn til að gefa til kynna að HTTPS sé virkt.
- Þegar báðir hnapparnir eru grænir, sérðu gögnin sem eru sýnileg milliliðum þegar þú notar bæði þessi verkfæri.
- Þegar báðir hnapparnir eru gráir, sérðu gögnin sem eru sýnileg milliliðum þegar þú notar hvorugt þessara verkfæra.




MÖGULEGA SÝNILEG GÖGN
- www.vefur.is
- Vefsvæðið sem verið er að skoða.
- notandi / lykilorð
- Notandanafn og lykilorð sem notuð eru við auðkenningu.
- gögn
- Gögn sem verið er að senda.
- staður
- Netstaðsetning tölvunnar sem notuð er til að heimsækja vefsvæðið (opinbert IP-vistfang).
- tor
- Hvort verið er að nota Tor eða ekki.